31. ágú. 2022 Framkvæmdir Umhverfið

Útskipting götuljósa á Vífilsstaðavegi

Á síðustu vikum hefur götuljósum verið skipt út á Vífilsstaðavegi. Um er að ræða 90 nýja led-lampa sem hafa verið settir upp á Vífilsstaðaveginum.

  • Vífilsstaðavegur
    Útskipting götuljósa á Vífilsstaðavegi

Á síðustu vikum hefur götuljósum verið skipt út á Vífilsstaðavegi.  Um er að ræða 90 nýja led-lampa sem hafa verið settir upp á Vífilsstaðaveginum. Útskiptin á lömpunum eru hluti af þeim verkefnum sem fólust í því að taka yfir veginn frá Vegagerðinni en um síðustu áramót tók Garðabær yfir rekstri Vífilsstaðavegar sem hafði áður verið á forræði Vegagerðarinnar. 

Útskipti á ljósastaurum á götum og stígum á næstu árum

Garðabær ætlar einnig á næstu árum að skipta út 1.800 ljósastaurum í Garðabæ fyrir betri ljós, með endingarbetri og orkusparandi ljósaperum með meiri ljósgæðum. Hafist verður handa á þessu ári við að skipta út um 500 ljósum með kvikasilfurperum sem eru á stígum á gönguleiðum barna og í námunda við skóla. Sjá frétt hér frá því í apríl á þessu ári um það verkefni.