Garðakortið - aðgöngukort í sundlaugar

Garðakort

Gestir sundlauganna í Garðabæ geta afgreitt sig sjálfir með Garðakortinu. Það eru 2 tegundir af Garðakortum - stafrænt kort sem fer í síma og eldri gerð plastkorta.  Til þess að kaupa kort í símann er farið á gardakort.is, aðgangur sem kaupa á valinn og greitt fyrir með greiðslukorti. Síminn er svo borinn upp að sérstökum skanna til þess að fá aðgang að sundlauginni. Plastkortin eru á hinn bóginn keypt í afgreiðslum sundlauganna og þar er einnig hægt að fylla á þau. Plastkortið er á stærð við krítarkort. Báðar tegundir korta eru gefin út á tiltekinn einstakling og eiga einungis að vera notuð af þeim einstaklingi. Við komu í sund er annað hvort síminn eða plastkortið lagt að skanna sem gefur grænt ljós ef inneign er fyrir hendi en annars kemur rautt ljós.

Umsóknir

Sótt er um stafrænu kortin á vefsíðunni gardakort.is og plastkortið í afgreiðslu Ásgarðs eða Álftaneslaugar. Stofnkostnaður er fyrir plastkort (sjá gjaldskrá sundlauga hér ) en enginn stofnkostnaður er fyrir stafræn kort. Stofnkostnaður á plastkortum greiðist aðeins í fyrsta skipti og ef kort glatast og þarfnast endurnýjunar.
Öll árskort eru gefin út á nafn og kennitölu sem prentað er á kortið.

Þeir sem kaupa 10 miða plastkort og GARÐAKORTIÐ í fyrsta skipti fá einn frímiða í sund í kaupbæti.

Gjaldfrjáls aðgangur

Þeir sem hafa gjaldfrjálsan aðgang í sund vegna aldurs, þ.e. börn 17 ára og yngri og eldri borgarar frá 67 ára aldri, verða að sækja sér árskort, annað hvort stafrænt eða plastkort til að fá aðgang að sundlaugunum. Stofnkostnaður er á plastkortum sem greiðist aðeins í fyrsta skipti og ef kort glatast og þarfnast endurnýjunar (sjá gjaldskrá sundlauga hér). Enginn stofnkostnaður er á stafrænu kortunum. Þessir aldurshópar fá ársmiða inn á sín kort endurgjaldslaust áfram sem hingað til. Slík persónugerð kort erfast ekki til annarra. 

Aðrir hópar sem fá gjaldfrjálst í sund, t.d. öryrkjar geta nú einnig fengið stafræn kort eftir að hafa skráð sig hjá afgreiðslu sundlauganna.

Afhending korta og kvittanir

Ný plastkort eru afhent vikulega, í fyrsta lagi síðdegis á föstudögum hafi verið sótt um þau á miðvikudeginum í sömu viku. Greiðslukvittun fyrir plastkort er hægt að fá í sundlaugum Garðabæjar.

Stafrænu kortin koma um leið og búið er að greiða fyrir þau á gardakort.is og í Iphone fara kortin inn í Wallet en í Samsung/Android símum þarf að sækja appið SmartWallet og setja kortið þar inn.
Kvittun fyrir stafrænu kortin má finna í þjónustugátt Garðabæjar undir flipanum Gjöld.


Skilmálar stafrænna sundkorta

Skilmálar Garðabæjar vegna Garðakorts

Engin grein fannst.