31. júl. 2020

Viðbragðsstaða vegna Covid-19

Í kjölfar ákvörðunar yfirvalda um hertar sóttvarnaraðgerðir sem tóku gildi frá og með hádegi 31. júlí 2020 er verið að fara yfir þá þjónustu Garðabæjar sem þetta hefur áhrif á í samræmi við viðbragðsáætlanir. /English below

  • Bæjarstjórn í beinni
    Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar 15. apríl kl. 17 er í beinni útsendingu hér á vef Garðabæjar.

Í kjölfar ákvörðunar yfirvalda um hertar sóttvarnaraðgerðir sem tóku gildi frá og með hádegi 31. júlí 2020 er verið að fara yfir þá þjónustu Garðabæjar sem þetta hefur áhrif á í samræmi við viðbragðsáætlanir. Þjónusta Garðabæjar helst í megindráttum óbreytt en vinnulag verður sniðið að nýjum samkomutakmörkunum.

Neyðarstjórn Garðabæjar kemur saman til fundar á þriðjudagsmorgun og fer yfir stöðuna og áhrifin sem þetta hefur á starfsemi og þjónustu Garðabæjar. Gripið verður til viðeigandi ráðstafana í samráði við almannavarnir og sóttvarnarlækni eftir þörfum.

Starfsfólk er hvatt til að huga vel að sínum einstaklingbundnu sóttvörnum og stjórnendur hafa yfirfarið sóttvarnir á starfsstöðum. Þá hafa sérstakar leiðbeiningar verið útbúnar vegna starfsfólks sem er að koma til vinnu erlendis frá til að draga úr smithættu.
Gefnar hafa verið út leiðbeiningar til starfsfólks á starfsstöðum fatlaðs fólks og í þjónustu við eldri borgara. Starfseiningum verður ekki lokað né þjónusta skert að svo búnu, svo sem í félagsstarfi aldraðra en gætt verður vel að 2ja metra reglunni og fjöldatakmarkanir virtar.

Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands áfram opið

Starfsemi safna helst að mestu óbreytt en þó gætt að fjöldatakmörkunum og 2ja metra reglunni. Burstabærinn Krókur sem er opinn á sunnudögum á sumrin verður lokaður næstu tvo sunnudaga þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægðarreglu þar.

Sundlaugar áfram opnar með takmörkunum

Álftaneslaug og Ásgarðslaug verða opnar með takmörkunum. Ekki mega fleiri en 100 manns vera í hverju rými og halda skal 2ja metra fjarlægð. Merkingar um fjöldatakmarkanir verða settar upp og sótthreinsunarspritt haft aðgengilegt.

Alert level due to COVID-19

In light of stricter disease prevention measures ordered by the authorities, which will come into effect at noon on July 31, the municipality Garðabær has reviewed its services in accordance with the relevant response plan. The municipality's services remain mostly unchanged while work procedures will be adjusted to fit new social distancing limits.

Employees are encouraged to practice individual disease prevention and managers have reviewed protocols in workstations. Furthermore, special guidelines have been prepared for staff members returning to work after trips abroad to minimise risk of infection.

Guidelines have been issued to staff in service apartments for the elderly, as well as the residents in apartments and group homes for people with disabilities. Operating units will not be closed nor will services be limited at this time as regards social activities for the elderly. However, the 2 m distance rule will be in place and number of people restrictions respected.

The operations of museums will remain mostly unchanged except for people restrictions and the 2 m rule.

Swimming places will be open with restrictions. No more than 100 people are allowed in each space and the 2 m rule is mandatory. Signs on restrictions to the number of people will be put up next to hot tubs and saunas and hand sanitiser will be accessible. Opening hours will remain the same.
We are on alert and will take the appropriate measures as needed, in cooperation with civil protection services and the chief epidemiologist.