17. sep. 2019

Uppskeruhátíð skólagarðanna

Uppskeruhátíð skólagarðanna í Silfurtúni var haldin laugardaginn 14. september sl. Boðið var upp á grillaðar pylsur til að fagna góðu starfi og viðurkenningarskjöl veitt fyrir þátttöku í skólagörðunum.

  • Uppskeruhátíð skólagarða 2019
    Uppskeruhátíð skólagarða 2019

Uppskeruhátíð skólagarðanna í Silfurtúni var haldin laugardaginn 14. september sl. Boðið var upp á grillaðar pylsur til að fagna góðu starfi og viðurkenningarskjöl veitt fyrir þátttöku í skólagörðunum.

Í skólagörðunum í sumar voru ræktaðar kartöflur, fjölmargar káltegundir og salöt. Uppskeruhátíðin var haldin með seinna móti í ár til þess að gefa kartöflunum og grænmetinu lengri vaxtartíma. Krakkar sem voru með garð mættu með fjölskyldum sínum til að taka upp uppskeru sumarsins. 

Þeir eldri borgarar sem höfðu nýtt sér að kaupa garð viku eftir að krökkunum var úthlutaður garður mættu einnig og tóku upp sína uppskeru. Þó svo að veðrið hafi ekki verið með besta móti þá létu viðstaddir það ekki á sig fá og var uppskera mjög góð í garðinum eftir sólríkt sumar.

Uppskeruhátíð skólagarða 2019

Uppskeruhátíð skólagarða 2019Uppskeruhátíð skólagarða 2019