16. des. 2022 Umhverfismál Þjónusta

Tunnuskipti vegna samræmds flokkunarkerfis hefjast í vor

Eins og fram hefur komið verður nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu innleitt á vormánuðum 2023 þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili.

  • Flokkunarkerfi_sorphirða
    Flokkunarkerfi: Matarleifa - Pappír og pappi - Plastumbúðir - Blandaður úrgangur

Eins og fram hefur komið verður nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu innleitt á vormánuðum 2023  þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili.

Tunnuskipti hefjast í vor – engar breytingar við heimili um áramót

Nokkurs misskilnings hefur gætt meðal íbúa vegna þessa og hafa sumir talið að tunnuskipti muni hefjast strax í byrjun næsta árs. Hið rétta í málinu er hins vegar að breytingar á tunnum íbúa, ef einhverjar verða, hefjast í fyrsta lagi í vor. Íbúar í Garðabæ þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir þegar tunnuskiptin koma til framkvæmda næsta vor nema að vera dugleg að flokka.

 

Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.

Meginmarkmið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við heimili.

Þetta verður stórt framfaraskref í umhverfis- og loftslagsmálum en meðal annars munu öll heimili fá tunnu fyrir matarleifar.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið á vefnum flokkum.is 

Sjá einnig frétt hér á vef Garðabæjar frá 6. desember sl.