Truflun á kalda vatninu
Vegna bilunar í veitukerfi gæti orðið truflun á kalda vatninu í Garðabæ í dag, 15. mars.
Vegna bilunar í veitukerfi gæti orðið truflun á kalda vatninu í Garðabæ í dag, 15. mars. Umfang bilunarinnar er ekki ljós eins og er en íbúar gætu orðið varir við minni þrýsting á kalda vatninu eða jafnvel vatnsleysi. Unnið er að viðgerð.
Íbúar eru hvattir að nota eins lítið vatn og mögulegt er meðan verið er að vinna að viðgerðum.