3. apr. 2023

Tónlistarnæring -Tónvöndur

Miðvikudaginn 5. apríl kl. 12:15 eru á dagskrá tónleikar í röðinni Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. 

  • Tónlistarnæring -Tónvöndur
    Miðvikudaginn 5. apríl kl. 12:15 eru á dagskrá tónleikar í röðinni Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.

Miðvikudaginn 5. apríl kl. 12:15 eru á dagskrá tónleikar í röðinni Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Tónvöndur er yfirskrift tónleikanna sem samanstendur af spennandi dagskrá eftir tónskáld úr mismunandi áttum sem sópransöngkonan Bryndís Guðjónsdóttir, flautuleikarinn Pamela De Sensi og píanóleikarinn Guðríður St. Sigurðardóttir flytja.

Ástríðufullir hljómar eftir Donizetti, Lehár og Previn blandast saman við rómantíska og fágaða hljóma og skapa skemmtilegar andstæður. Tónskáldin voru flest uppi á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar. Efnisskráin er í heild blanda af þekktum sem og minna þekktum tónverkum fyrir þessa samsetningu.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Tónleikarnir eru liður í hádegistónleikaröðinni Tónlistarnæring, listrænn stjórnandi er Ólöf Breiðfjörð.

Tónleikarnir eru síðustu tónleikar vorannar en þann 6. september hefst tónleikaröðin aftur.