27. des. 2022

Tafir á sorphirðu vegna veðurs

Vegna mikillar snjókomu undanfarna daga hafa orðið tafir á sorphirðu í íbúðagötum í bænum.

Vegna mikillar snjókomu undanfarna daga hafa orðið tafir á sorphirðu í íbúðagötum í bænum.  Í lok dags þriðjudag 27. desember verður væntanlega búið að vinna það upp að mestu leyti en þá er gert ráð fyrir að sorphirða verði um sólarhring á eftir áætlun.  
Íbúar eru vinsamlega beðnir um að moka frá sorpskýlum til að auðvelda sorphirðu. 

Hér má sjá upplýsingar um sorphirðu og sorphirðudagatal ársins 2022.  Sorphirðudagatal fyrir árið 2023 verður sett inn á vefinn á næstu dögum.