23. des. 2020

Sorphirða um jól og áramót

Sorphirða fer fram núna síðustu daga fyrir jól og á aðfangadag skv. sorphirðudagatali og aftur strax eftir áramót (pappírstunna er tæmd milli jóla og nýárs). Umframsorp sem kemst ekki fyrir í almennu tunnunum má skilja eftir í vel lokuðum plastpokum við hliðina á sorptunnunum við fyrstu tæmingu eftir áramót en íbúar eru jafnframt hvattir til að flokka vel og nýta grenndargáma eða endurvinnslustöðvar Sorpu.

  • Gámagerði við Hofsstaðavöll
    Gámagerði við Hofsstaðavöll

Hér fyrir neðan er hægt að sjá skjal sem sýnir hvenær sorp og pappír er hirtur í Garðabæ.  Nýtt sorphirðudagatal fyrir árið 2021 er einnig komið á vefinn.  Sorphirða í Garðabæ fer fram núna síðustu daga fyrir jól og á aðfangadag skv. sorphirðudagatali og aftur strax eftir áramót (pappírstunna er tæmd milli jóla og nýárs).  Umframsorpi sem kemst ekki fyrir í almennu tunnunum má skilja eftir í vel lokuðum plastpokum við hliðina á sorptunnunum við fyrstu tæmingu eftir áramót. 
Íbúar eru jafnframt hvattir til að flokka vel um hátíðarnar og minnt er á að hægt er að fara með flokkað rusl, s.s. pappír, plast o.fl. í grenndargáma sem og í endurvinnslustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. 

Sorp frá heimilum er almennt hirt á 10-12 daga fresti. Tafir geta orðið vegna veðurs eða frídaga. Hvert Pappírstunnan er tæmd á u.þ.b. 20 daga fresti. Plast má setja í sorptunnuna (orkutunnuna) í lokuðum plastpoka. Plastpokarnir verða flokkaðir sérstaklega frá öðru rusli og þeim komið til endurvinnslu. 

Sorphirðudagatal 2020

Sorphirðudagatal 2021

Grenndargámar

Staðsetningu grenndargáma í Garðabæ má sjá á kortavefnum . Smellt er á "Umhirða" og svo hakað í "Grenndargámar"