27. jún. 2018

Snyrtilegar lóðir 2018

Umhverfisnefnd óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2018. Einnig  um snyrtileg opin svæði og snyrtilega götu.

  • Nyhofn2_6-3-

Umhverfisnefnd óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2018. Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði og snyrtilega götu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is  fyrir 9. júlí nk.