21. maí 2021

Sérstakur íþrótta- og tómstundastyrkur til barna - má nýta í sumarnámskeið

Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Frestur til að sækja um hefur verið framlengdur til 31. júlí nk. og hægt er að nýta styrkinn vegna útlagðs kostnaðar við íþrótta- og tómstundastarf á skólaárinu 2020- 2021 og sumar 2021, allt að 45.000 kr. fyrir hvert barn.

  • Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir vegna Covid-19
    Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir vegna Covid-19

Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr á mánuði í fyrra á tímabilinu mars-júlí 2020.

Styrkurinn er allt að 45.000 kr fyrir hvert barn. Frestur til að sækja um hefur verið framlengdur til 31. júlí nk. og hægt er að nýta styrkinn vegna útlagðs kostnaðar við íþrótta- og tómstundastarf á skólaárinu 2020- 2021 og sumar 2021, allt að 45.000 kr. fyrir hvert barn.

Á barnið þitt rétt á styrk?

Á Ísland.is má sjá hvort barn á rétt á þessum styrk, þar sést hvort heimilið fellur undir viðmið um tekjur á tímabilinu mars-júlí 2020 eins og fram kemur hér ofar. Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Ísland.is.

Ef barnið á rétt á styrknum þurfa foreldrar eða forráðamenn (með sama lögheimili og barnið) að sækja um greiðslu á styrknum í gegnum sérstakt umsóknareyðublað. Aðgangur að umsóknareyðublaðinu opnast eftir að jákvætt svar hefur fengist á Ísland.is um rétt til styrks og er sótt um styrkinn í framhaldi af því á Ísland.is, ekki er hægt að finna umsóknina með öðrum leiðum.

Garðabær sér svo um að greiða út styrkina til umsækjenda í Garðabæ sem falla undir skilyrðin skv. beiðni frá félagsmálaráðuneytinu.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks

  • Umsókninni þarf að fylgja reikningur frá íþrótta- eða tómstundafélagi sem sýnir að barnið sé skráð á námskeið.
  • Endurgreiðsla verður að hámarki 45.000 krónur fyrir hvert barn og er opið fyrir umsóknir til 31. júlí 2021.
  • Styrk skal greiða vegna útlagðs kostnaðar við íþrótta- og tómstundastarf á skólaárinu 2020- 2021 og sumar 2021, allt að 45.000 kr. fyrir hvert barn.
  • Íþrótta- og tómstundastyrkir eru veittir vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, þar með talið leikjanámskeiðum og sumarbúðum.  Ekki er heimilt að nýta íþrótta- og tómstundastyrk til greiðslu á tækjum, búnaði, fatnaði og ferðum. Hægt er að nýta styrkinn til greiðslu keppnis- og mótsgjald. 

Reglur Garðabæjar um styrkina. 

Information on the grant for sports and leisure activities in other languages