15. sep. 2022 Samgöngur Stjórnsýsla Umhverfismál

Samgönguvika 16.-22. september

Evrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Garðabær tekur þátt í samgönguvikunni sem fyrr ásamt sveitarfélögum víðs vegar um allt land.

  • Samgönguvika 16. -22. september 2022
    Samgönguvika 16. -22. september 2022

Evrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Garðabær tekur þátt í samgönguvikunni sem fyrr ásamt sveitarfélögum víðs vegar um allt land.

Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Garðbæingar eru hvattir til að kynna sér dagskrá Samgönguviku og fara út að hjóla, ganga eða hlaupa. Einnig er hægt að nýta sér rafhlaupahjól í bænum og zipcar deilibíl sem staðsettur er á Garðatorgi. Í leiðsagnarappinu Wappinu má finna fjölmargar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir í Garðabæ. Leiðirnar eru með kortum, gps hnitum, ljósmyndum og upplýsingum á íslensku og ensku.

Laugardaginn 17. september verður Hjólaævintýri höfuðborgarsvæðisins haldið en þá hjóla fulltrúar allra sveitarfélagana á höfuðborgarsvæðinu saman og njóta útiverunnar. Sjá nánar um hjólaævintýrið hér .

Frekari upplýsingar um Evrópska samgönguviku á Íslandi má finna á Facebook-síðu vikunnar.