1. feb. 2019

Safnanótt og Sundlauganótt í Garðabæ

Hin árlega Vetrarhátíð fer fram dagana 7.-10. febrúar nk. með þátttöku allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í Garðabæ á Safnanótt 8. febrúar og Ásgarðslaug tekur þátt í Sundlauganótt 9. febrúar. 

Hin árlega Vetrarhátíð fer fram dagana 7.-10. febrúar nk. með þátttöku allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Á Safnanótt, föstudaginn 8. febrúar, verður opið hús og fjölbreytt dagskrá frá kl. 18-23 í Hönnunarsafni Íslands, burstabænum Króki og Bókasafni Garðabæjar við Garðatorg. Auk þess verður opið hús á Bessastöðum frá kl. 19-22. Í ár tekur Ásgarðslaug þátt í Sundlauganótt sem verður haldin laugardaginn 8. febrúar frá kl. 17-22.

 Í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar er hægt að sjá tímasetta dagskrá í Garðabæ á Safnanótt og á Sundlauganótt en jafnframt er hægt að sjá dagskrá annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á vef Vetrarhátíðar.

Opið hús í Króki á Garðaholti á Safnanótt

Burstabærinn Krókur á Garðaholti verður með opið hús á Safnanótt frá kl. 18-23. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Börn sem koma í heimsókn í Krók á Safnanótt geta tekið þátt í ratleik á staðnum auk þess sem safnvörður veitir leiðsögn. Bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti, en Krókur staðsettur á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar.

Geðveikar húsmæður, spákona, axlarnudd, ratleikur og Jón Jónsson í bókasafninu

Í Bókasafni Garðabæjar við Garðatorg verður skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa á Safnanótt frá kl. 18-23. Boðið verður upp á ratleik og leiðsögn um safnið, barnakór Sjálandsskóla syngur, gestir geta pantað stuttan tíma í axlarnudd eða tíma hjá spákonu. Geðveikar húsmæður er yfirskrift fyrirlestrar bókmennafræðingsins Hörpu Rúnar Kristjánsdóttur, nemendur úr rytmadeild Tónlistarskóla Garðabæjar spila fyrir gesti og að lokum mætir enginn annar en hinn vinsæli tónlistarmaður Jón Jónsson í safnið.

Skuggaleikur í Hönnunarsafninu á Safnanótt

Á Safnanótt verður opið til kl. 23 um kvöldið og ókeypis aðgangur inn á sýningar og dagskrá Hönnunarsafnsins. Boðið verður upp á skuggateiknismiðju í tengslum við sýninguna Safnið á röngunni með Einari Þorsteini í Hönnunarsafni Íslands. Mörg verka arkitektsins og hönnuðarins Einars Þorsteins Ásgeirssonar (1942-2014) varpa frá sér flóknum og spennandi skuggum og ætla systkinin og myndlistarmennirnir Baldur og Birna Björnssbörn að leiðbeina þátttakendum inn í það spil. Með teikniáhöld að vopni býðst gestum að teikna upp skuggana og kynnast þannig formheimi Einars Þorsteins.
Smiðjurnar verða fjórar talsins á Safnanótt og hefjast kl. 19, 20, 21 og 22.

Opið hús á Bessastöðum á Safnanótt kl. 19-22

Á Safnanótt verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi frá kl. 19-22. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu og kirkjuna. Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist og fornleifar sem veita innsýn í búsetu á Bessastöðum frá landnámstíð. Þá mun fyrsti forsetabíll lýðveldissögunnar, Packard bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði Bessastaða.

Sundlauganótt í Ásgarðslaug laugardaginn 9. febrúar

Í ár tekur Ásgarðslaug þátt í Sundlauganótt sem verður haldin föstudagskvöldið 9. febrúar nk. frá kl. 18-22. Ókeypis aðgangur fyrir alla í laugina um kvöldið. Boðið verður upp á dótasund í barnalauginni fyrri part kvölds, sunddeild Stjörnunnar mætir til leiks og býður upp á örkennslu í sundtækni. Töframaðurinn Jón Víðis mætir og skemmtir gestum og hægt verður að leika sér með sirkusdót á staðnum auk þess sem Sirkus Íslands mætir með skemmtilegt fimleikasirkusatriði. Sundlaugagestir gesta svo fjölmennt í hressilegan zumbatíma í sundlauginni og svo verður róleg stemning seinni part kvölds. Sundlaugin verður lýst upp til að skapa notalega stemningu og einnig verður spiluð tónlist.