25. nóv. 2020

Röskun á skólastarfi vegna veðurs - leiðbeiningar

Leiðbeiningar varðandi röskun á skólastarfi vegna veðurs hafa verið uppfærðar og taka mið af viðvörunarkerfi (litakóða) Veðurstofu Íslands. Leiðbeiningarnar, sem gefnar hafa verið út á íslensku, ensku og pólsku, fela í sér tilmæli um viðbrögð og hlutverk foreldra/forsjáraðila barna í skólum og frístundastarfi þegar veðurviðvaranir eru gefnar út.

  • Röskun á skólastarfi / disruption of school operations
    Röskun á skólastarfi / disruption of school operations

Leiðbeiningar varðandi röskun á skólastarfi vegna veðurs hafa verið uppfærðar og taka mið af viðvörunarkerfi (litakóða) Veðurstofu Íslands. Leiðbeiningarnar, sem gefnar hafa verið út á íslensku, ensku og pólsku, fela í sér tilmæli um viðbrögð og hlutverk foreldra/forsjáraðila barna í skólum og frístundastarfi þegar veðurviðvaranir eru gefnar út. Leiðbeiningarnar eiga við ,,yngri börn" þ.e. börn yngri en 12 ára.

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur verið falið af sveitarfélögunum á svæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld. ENGLISH / Polska below.

Ábyrgð foreldra / forráðamanna

Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn, hér eftir nefndir forsjáraðilar, fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. ef bifreið er ekki búin til vetraraksturs.

Leiðbeiningar þessar eiga við „yngri börn“, það er börn yngri en 12 ára. Athugið að hér er aðeins um viðmið að ræða sem er háð mati forsjáraðila.

Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Forsjáraðilar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það sem lítur þá á tilvikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Hvernig á að bregðast við veðurviðvörun frá Veðurstofu Íslands?

Upplýsingar um hvernig forsjáraðilar bregðast við veðurviðvörunum frá Veðurstofu Íslands eru að finna í leiðbeiningum á vef Slökkviliðis höfuðborgarsvæðisins.

Leiðbeiningarnar eru á íslensku, ensku og pólsku auk þess sem hægt er að sjá þýðingar yfir á fleiri tungumál.

Disruption of school and extracurricular activities due to bad weather

Please find further information for parents/guardians on the website of The Capital District Fire and Rescue Service (Civil Protection Committee in the capital area)

Zakłócenie zajęć szkolnych i świetlicowych

INSTRUKCJE DLA RODZICÓW ORAZ OPIEKUNÓW Jak reagować na ostrzeżenia pogodoweIslandzkiego Instytutu Meteorologicznego? Komitet Ochrony Cywinej Okręgu Stołecznego