21. apr. 2023

Rampur númer 450 í Garðabæ

Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag. 

  • Almar Guðmundsson, Hákon Atli Bjarkason og Mar­grét Rut Eddu­dótt­ir sáu um borðaklippingu
    Almar Guðmundsson, Hákon Atli Bjarkason og Mar­grét Rut Eddu­dótt­ir sáu um borðaklippingu. Myndir: Golli

36 fyrirtæki hafa fengið nýja eða uppfærða rampa í Garðabæ á undanförnum dögum á vegum verkefnisins Römpum upp Ísland. 450 rampar hafa verið settir upp á landsvísu frá því að verkefnið var sett af stað en markmiðið er 1500 á fjórum árum.

Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag.


„Mig langar auðvitað að þakka Römpum upp Ísland fyrir þeirra góða framlag hér í bænum, það hefur verið gaman að fylgjast með þeim að störfum. Römpum upp verkefnið er gott og löngu tímabært framtak og mikilvægt jafnréttismál,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri og bendir á að hreyfihamlað fólk leggur oft mikla vinnu á sig til að komast að því hvort staðir séu aðgengilegir, í stað þess að það sé sjálfsagt. „Að tryggja gott aðgengi er samfélagslegt verkefni okkar allra.“


Meðal þeirra sem hafa fengið uppfærslur á römpum í Garðabæ eru hársnyrtistofur, verslanir, kaffihús og ísbúð.

Um Römpum upp Ísland

Römpum upp Ísland er verkefni þar sem miðað er að því að setja upp 1500 rampa á næstu 4 árum um land allt. Stofnaður var sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja og aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu. Framlag ríkisins nemur 200 milljónum kr. á tímabilinu. Álíka upphæð mun renna inn í verkefnið frá einkaaðilum og sveitarfélögum.

Með römpunum er öllum gert kleift að komast á þægilegan hátt inn á veitingastaði og verslanir á landinu öllu. Verkefnið verður framkvæmt í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvalda. 

Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins.