25. apr. 2023

Nýr samstarfssamningur við Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar

Samninginn undirrituðu þeir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Andrés Sigurðsson formaður sóknarnefndar Bessastaðasóknar í blíðskaparveðri á Álftanesi 

  • Æskulýðsstarf á Álftanesi
    Vilborg Ólöf Sigurðardóttir, djákni, Auður S Arndal, úr sóknarnefnd, Andrés Sigurðsson, formaður sóknarnefndar, Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, stilla sér upp við körfuboltaspjald safnaðarheimilisins á Álftanesi, en fermingarbörnin eru dugleg við að spila við prófastinn í fermingarfræðslunni.

Garðabær og Bessastaðasókn hafa gert með sér nýjan samstarfssamning um framkvæmd æskulýðsstarfs á Álftanesi. Samningurinn gildir til ársins 2025 og felur æskulýðsfélagi Bessastaðasóknar meðal annars að annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga og vinna að bættu unglingsamfélagi í Garðabæ.

Samninginn undirrituðu þeir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Andrés Sigurðsson formaður sóknarnefndar Bessastaðasóknar í blíðskaparveðri á Álftanesi í dag.

Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar skal við framkvæmd samningsins huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Stjórn ber ábyrgð á að félagið innleiði og starfi samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum um kynferðislegt áreiti. Félagið skal setja upp áætlanir varðandi eineltismál og njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við þeim. Þar skal byggt á forvarnastefnu bæjarins þar sem m.a. kemur fram áhersla á að uppræta og vinna gegn einelti, finna fyrirbyggjandi lausnir og auka samvinnu allra uppeldisaðila til að uppræta einelti í skólum og félagsstarfi í Garðabæ.

Hlutverk æskulýðsfélagsins og starfsins er meðal annars að:

  • Efla barna- og unglingastarf við kirkjuna m.a. í formi sunnudagaskóla.
  • Efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í Garðabæ.
  • Annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf, lífsleikni og almennt siðfræði.
  • Annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga í samstarfi við önnur félög og stofnanir í Garðabæ.
  • Vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ og auka breidd og valkosti í æskulýðsstarfi í bænum.
  • Bjóða upp á foreldramorgna með fræðslu og góðu samfélagi
  • Bjóða aðstoð við lífsleiknikennslu FG með fræðslu um sorgarúrvinnslu og almennu hjálparstarfi.
  • Tilnefna fulltrúa í forvarnarteymi bæjarins og taka þátt í forvarnarfræðslu í samstarfi við forvarnarfulltrúa Garðabæjar.