Skemmtileg dagskrá
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. var fjölbreytt dagskrá í boði í Garðabæ frá morgni til kvölds. Um morguninn gátu ungir sem aldnir m.a. prófað að fara á kanó og kajak og veitt sér til skemmtunar í Vífilsstaðavatni. Einnig var hægt að prófa gólf, fara í dótasund og taka þátt í rathlaupi.
Að venju var hátíðarmessa í Vídalínskirkju þar sem einn af nýstúdentum vorsins úr FG flutti hugleiðingu og kór Vídalínskirkju söng. Frá kirkjunni var haldið í skrúðgöngu að hátíðarsvæðinu við Ásgarð þar sem boðið var upp á tónlist, ræður, töfrasýningu, dans, fimleikasýningu o.fl. Auk þess gat yngsta kynslóðin skemmt sér í ýmsum leiktækjum. Skátafélagið Vífill hafði umsjón með hátíðarhöldunum í Garðabæ.
Garðbæingar skemmtu sér vel á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Um kvöldið voru hátíðartónleikar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli þar sem hljómsveitin Salon Islandus og Diddú fluttu m.a. vínartónlist og aðra hugljúfa tónlist. Leynigestur kvöldsins var Gréta Salóme sem lék eitt lag á fiðlu með hljómsveitinni. Fjölmenni mætti í safnaðarheimilið til að njóta góðrar kvöldstundar.
Diddú og Salon Islandus á hátíðartónleikum í Kirkjuhvoli.
Gréta Salóme var leynigestur kvöldsins á hátíðartónleikunum.