Erling Ásgeirsson kjörinn formaður bæjarráðs
Erling Ásgeirsson kjörinn formaður bæjarráðs
Erling Ásgeirsson var kjörinn formaður bæjarráðs á fyrsta fundi nýs bæjarráðs þriðjudaginn 20. júní sl. Stefán Konráðsson var kjörinn varaformaður bæjarráðs á sama fundi.
Bæjarráð fer, ásamt bæjarstjóra, með framkvæmdastjórn bæjarins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki falin öðrum. Þrír bæjarfulltrúar sitja í bæjarráði og eru þeir kjörnir til eins árs í senn.
Bæjarráð fundar á hverjum þriðjudagsmorgni og eru fundargerðir ráðsins birtar á vef Garðabæjar samdægurs.
Auk Erlings og Stefáns situr Steinþór Einarsson í bæjarráði.
Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs
2006-2007