30. jan. 2007

Dregið úr umsóknum um lóðir

Dregið úr umsóknum um lóðir
  • Séð yfir Garðabæ


Dregið var úr umsóknum um lóðir á Hraunsholti eystra og í Garðahrauni á fundi bæjarráðs í morgun. Viðstaddir útdráttinn voru sýslumaður og þrír fulltrúar umsækjenda.

Dregið var um einbýlishús á Hraunsholti eystra og í Garðahrauni og um parhús í Garðahrauni.

Bæjarráð mun gera tillögu til bæjarstjórnar um úthlutun skv. útdrættinum. Bæjarstjórn afgreiðir málið endanlega á fundi sínum 1. febrúar.

Rétt er að minna á eftirfarandi ákvæði í reglum um úthlutun lóða:

Úthlutun á byggingarrétti er ávallt háð því að umsókn sé gild og er áskilinn réttur til að kanna nánar útdregnar umsóknir. Komi í ljós að umsókn uppfylli ekki ofangreind skilyrði fellur réttur til úthlutunar niður.

Listar með nöfnum þeirra sem dregnir voru út eru aðgengilegir hér fyrir neðan í PDF-skjölum.

Úthlutun byggingarréttar á einbýlishúsalóðum á Hraunsholti eystra skv. útdrætti 30. janúar 2007.

Úthlutun byggingarréttar á einbýlishúsalóðum í Garðahrauni skv. útdrætti 30. janúar 2007.

Úthlutun byggingarréttar á parhúsalóðum í Garðahrauni skv. útdrætti 30. janúar 2007.

Dregið um lóðir 30.01. 2007