18. maí 2007

Styrkir afhentir úr afrekssjóði

Afrekssjodur 2007
  • Séð yfir Garðabæ


Fjórir íþróttamenn fengu afhenta styrki úr afrekssjóði sl. miðvikudag en þeir eru veittir íþróttamönnum sem sýna afburða árangur í íþróttagrein sinni.  Bæjarstjórn veitti Stjörnunni einnig 5 milljónir króna í styrk vegna glæsilegs árangurs meistaraflokka félagsins í vetur. Styrkirnir voru veittir við hátíðlega athöfn á Garðaholti.

Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs afhenti Páli Grétarssyni, framkvæmdastjóra Stjörnunnar 5 milljóna króna styrk til félagsins. Tilefnið er afar glæsilegur árangur á leiktíðinni sem er að ljúka; karlalið handknattleiksdeildar varð bikarmeistari, kvennalið deildarinnar varð Íslands og deildarmeistari, karlaliðið í blaki varð deildar-, bikar- og Íslandsmeistari og karlaliðið í körfuknattleik komst upp í úrvalsdeildina og mun spila við öll bestu lið landssins næsta vetur.

Styrkir úr afrekssjóði

Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs afhenti styrki úr afrekssjóði. Þau sem fengu styrki voru:

Eygló Myrra Óskarsdóttir kylfingur

Þó svo að Eygló sé ung að árum hefur hún náð geysilega langt í íþrótt sinni. Eygló varð á síðasta ári Íslandsmeistari í höggleik stúlkna og stigameistari GSÍ í sama flokki. Hún varð klúbbmeistari kvenna í GKG og varð Faldomeistari stúlkna 18 ára og yngri. Hún stefnir langt í íþrótt sinni og er öðrum á sínum aldri sérlega góð fyrirmynd.

Eygló fékk kr. 150.000 úr afrekssjóði

Ottó Sigurðsson kylfingur

Ottó ákvað síðastliðið haust að feta veg atvinnumennskunnar í golfi. Ottó hefur æft mjög vel á þessu ári og stefnir á fjölmörg mót hér heima og erlends á þessu ári. Ottó spilar fyrir GKG.

Ottó fékk kr. 150.000 úr afrekssjóði

Linda Björk Lárusdóttir frjálsíþróttakona

Linda bætti sig í öllum greinum á síðasta ára og var valin í A-landslið Íslands í 4 x 100 m hlaupi. Hún varð Íslandsmeistari í 60 m og 100 m grindahlaupi á síðasta ári og byrjar árið vel því hún varð á þessu ári Íslandsmeistari í 60 m hlaupi, 60 m grindarhlaupi og 200 m hlaupi í flokki 19-22 ára innanhús. Hún stefnir á enn frekari árangur á þessu ári.

Linda fékk kr. 200.000 úr afrekssjóði

Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona

Ragnheiður varð íþróttamaður Garðabæjar á síðasta ári. Hún var í 26. sæti á alþjóðlega stigalistanum í 50 m skriðsundi í 25 m laug í lok síðasta árs og setur sér það markmið að komast á topp 10 á þessu ári. Ragnheiður hefur verið okkar helsta sundkona á mótum erlendis og mun á þessu ári keppa í fjölmörgum keppnum m.a. keppti hún í nýloknu HM í Ástralíu ásamt fleiri keppnum og æfingaferðum á þessu ári og því næsta.

Ragnheiður fékk kr. 250.000 úr afrekssjóði auk þess fékk hún 100.000 krónur fyrir að vera valin íþróttamaður Garðabæjar 2006.

Afreksíþróttamennirnir ásamt Ragnhildi Ingu, formanni ÍTG og Gunnari Einarssyni bæjarstjóra

Frá vinstri: Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir, Ottó Sigurðsson,
Linda Björk Lárusdóttir, Eygló Mirra Óskarsdóttir,
Gunnar Einarsson og Ragnar Marteinsson sem tók við
styrknum fyrir hönd Ragnheiðar Ragnarsdóttur.

Páll Grétarsson tekur við styrk f.h. Stjörnunnar

Páll Grétarsson (t.v.) tekur við 5 milljóna króna styrk t.h.
Stjörnunnar úr hendi Erlings Ásgeirssonar.