14. jún. 2007

Opið hús í Króki á Garðaholti 17. júní

Opið hús í Króki á Garðaholti 17. júní
  • Séð yfir Garðabæ

Í sumar verður smábýlið Krókur á Garðaholti opið á hverjum sunnudegi  frá kl. 13 - 17 og aðgangur er ókeypis. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og býlið gefur góða mynd um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á fyrri hluta 20. aldar. 

Garðbæingar eru hvattir til að heimsækja Krók í sumar og tilvalið er að fá sér sunnudagsrúnt og koma við á Garðaholtinu. (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu á Garðaholti).


Krókur á Garðaholti.  Sunnudaginn 17. júní nk. verður opið hús frá kl. 13 - 17 og allir eru velkomnir. 
Sjá einnig hátíðardagskrá fyrir 17. júní í Garðabæ.

Saga Króks

Um vorið 1934 hafði Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir fengið ábúð á Króki en maður hennar var Vilmundur Gíslason. Þau hjónin áttu fjögur börn og Guðrún Sveinsdóttir móðir Vilmundar bjó einnig hjá þeim. Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir (kölluð Tobba) var fædd árið 1899.  Í Króki var búið allt til ársins 1985 þegar Þorbjörg lést. Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998 með því skilyrði að bærinn yrði endurbyggður. Jón Nordsteien arkitekt stjórnaði endurgerð bæjarins og Einar Hjartarson húsasmíðameistari var fenginn til að vinna verkið. Systurnar Elín og Vilborg Vilmundardætur höfðu umsjón með uppröðun húsmuna.