21. feb. 2008

Takið þátt í að móta stefnu í íþrótta- og tómstundamálum

Áfram Garðabær
  • Séð yfir Garðabæ

Garðbæingar fá tækifæri til að taka þátt í mótun stefnu í íþrótta- og tómstundamálum á íbúaþingi sem haldið verður í Flataskóla laugardaginn 23. febrúar kl. 10-12.

Tilgangur fundarins er að fá fram hugmyndir, skoðanir og væntingar Garðbæinga um framtíðarstefnu í íþrótta- og tómstundamálum.

Unnið verður í vinnuhópum og niðurstöður kynntar í lok þingsins. Framlag þátttakenda verður síðan nýtt við mótun stefnu í málaflokknum.

Garðbæingar eru hvattir til að nýta tækifærið, taka þátt í starfinu og hafa þannig áhrif á  stefnu bæjarins í iþrótta- og tómstundamálum.