Þorrablót á Holtakoti
Á Heilsuleikskólanum Holtakoti á Álftanesi var bóndadagurinn haldinn hátíðlegur með þorrablóti.
Á Heilsuleikskólanum Holtakoti á Álftanesi var bóndadagurinn haldinn hátíðlegur með þorrablóti.
Hátíðin byrjaði strax klukkan 8 að morgni en börnin buðu feðrum sínum og öfum í kaffi og þorramat í morgunsárið. Þegar afar, pabbar og börn höfðu borðað nægju sína af súrum pungum, hákarli, flatkökum og fleiru góðgæti hittust allir í sal leikskólans. Börnin á hverri deild höfðu æft eitt lag sem þau sungu af mikilli list fyrir gestina og að lokum sungu allir saman þrjú lög í anda þorrans.
Við þökkum öllum feðrum og öfum sem sáu sér fært að koma og vera með okkur á Bóndadaginn.