Magnaður bikarúrslitaleikur
Stjarnan leikur við Selfoss í úrslitaleik í bikarkeppninni á morgun laugardag. Fjölskylduhátíð hefst á Stjörnutorgi kl. 14.
Stjarnan leikur við Selfoss í úrslitum í bikarkeppninni, Borgunarbikarnum, laugardaginn 29. ágúst kl. 16:00 á Laugardalsvelli.
Fjölskylduhátíð hefst á Stjörnutorgi kl. 14 þar sem boðið verður upp á grillveislu, andlitsmálun, hoppukastala, tónlist og fleira. Fríar rútuferðir verða á leikinn og til baka.
Áfram Stjarnan!