Stuttmyndir nemenda á RIFF kvikmyndahátíðinni
Nemendur úr 6. og 9. bekk í grunnskólum Garðabæjar sóttu stuttmyndanámskeið á vegum RIFF í apríl sl. á svipuðum tíma og Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ voru haldnir.
Á námskeiðinu fengu nemendurnir fræðslu um leikstjórn, handritsgerð og klippingu og bjuggu svo til eigin stuttmyndir í kjölfarið.
Hópur nemenda úr Álftanesskóla nýttu sér nærumhverfi sitt sem sögusvið og tóku upp hrollvekju í bænum Króki á Garðaholti. Hrollvekjan ber nafnið Feluleikur og fjallar um nokkrar vinkonur sem fara í feluleik sem endar öðruvísi en þær áttu von á.
Stuttmyndir nemenda úr skólum Garðabæjar verða sýndar sem hluti af RIFF kvikmyndahátíðinni sunnudaginn 2. október kl. 11 í Norræna húsinu. Sjá nánar hér.
Meðfylgjandi myndir með frétt sýna skjáskot úr stuttmyndinni Feluleik.