Forsetinn heimsótti eldri borgara í Jónshúsi
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heimsótti eldri borgara í félagsmiðstöðinni Jónshúsi miðvikudaginn 15. febrúar sl. Það var Félag eldri borgara í Garðabæ sem hafði frumkvæði að heimsóknni og bauð forseta Íslands að heimsækja Jónshús sem er staðsett við Strikið í Sjálandshverfinu.
Stefanía Magnúsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Garðabæ, bauð forsetann velkominn og því næst hélt Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar stutta tölu og sagði meðal annars frá kynnum hans af forsetanum í íþróttastarfi í Garðabæ fyrr á árum. Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, flutti við þetta tækifæri nokkur lög og að því loknu steig forsetinn í pontu þar sem hann rifjaði upp æskuár sín í Garðahreppi sem síðar varð Garðabær. Fjölmenni var mætt í Jónshús þennan dag og að lokinni dagskrá var boðið upp á kaffi og meðlæti og gestir spjölluðu við forsetann og rifjuðu upp eldri kynni.
Sjá líka frétt á vef forsetaembættisins.