21. feb. 2017

Ánægja með þjónustu Garðabæjar

Garðabær lendir í 2. sæti í sex spurningum af þrettán viðhorfsspurningum í árlegri íbúakönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2016. Þjónustukönnunin er síma- og netkönnun þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt.
  • Séð yfir Garðabæ
Garðabær lendir í 2. sæti í sex spurningum af þrettán viðhorfsspurningum í árlegri íbúakönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2016. Þjónustukönnunin er síma- og netkönnun þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt.

Í þjónustukönnuninni er meðal annars spurt um viðhorf íbúa um þjónustu leik- og grunnskóla, gæði umhverfis, aðstöðu til íþróttaiðkunar, sorphirðu, menningarmál, skipulagsmál, þjónustu við eldri borgara, þjónustu við fatlað fólk, þjónustu sveitarfélagsins í heild sinni, úrlausn erinda og um sveitarfélagið sem stað til að búa á. 

Garðbæingar eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á en sú spurning fékk hæstu einkunnina 4,4 (á mælikvarðanum 1-5).  Garðabær er í flestum spurningum í efstu sætum og í samanburði við önnur sveitarfélög er meðaltal úr spurningum hærra í öllum tilvikum nema tveimur þar sem það er jafnt meðaltalinu.

Íbúar Garðabæjar eru næst ánægðastir íbúa allra sveitarfélaganna þegar spurt er um gæði umhverfis, þjónustu leikskóla og þjónustu grunnskóla, þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið.  Sama á við þegar spurt er um ánægju með skipulagsmál almennt í sveitarfélaginu og um þjónustu í tengslum við sorphirðu.

Á heildina litið er niðurstaðan úr íbúakönnuninni góð en þó eru ýmsir þættir úr könnuninni sem ástæða er að rýna betur í til að skoða hvað hægt er að gera enn betur. Þar má nefna þjónustu við fatlað fólk, barnafjölskyldur, eldri borgara, aðstöðu til íþróttaiðkunar og úrlausn erinda. 

Annar þáttur sem þarf að skoða betur er munur á svörum þeirra sem búa á Álftanesi og þeirra sem búa annars staðar í Garðabæ á þann veg að þeir sem búa á Álftanesi gefa þjónustunni í einstaka málaflokkum lægri einkunn en aðrir.

Íbúakönnunin var lögð fram til kynningar í bæjarráði Garðabæjar í morgun, þriðjudaginn 21. febrúar, og samkvæmt tillögu sem var samþykkt í bæjarráði verður könnunni vísað til umfjöllunar nefnda Garðabæjar ásamt því að settir verða á fót rýnihópar til að greina frekar niðurstöður í einstaka málaflokkum. 

Íbúakönnunin er aðgengileg hér á vef Garðabæjar (pdf-skjal).