Fyrsta sögugangan á Degi umhverfisins 25. apríl
Þriðjudaginn 25. apríl nk. á Degi umhverfisins verður haldið í sögugöngu um Arnarnesið undir leiðsögn Arinbjörns Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar. Gangan er létt og þægileg og á leiðinni verður fræðst um Wegenerstöpul og Gvendarlind.

Sögugangan hefst kl. 17:00 og mæting er neðst í götunni Hegranes við Arnarneslæk, þangað er hægt að koma gangandi víða að en einnig er hægt að leggja bílum á bílaplani neðst í Hegranesinu.
Sögugangan er samstarfsverkefni umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og Bókasafns Garðabæjar. Á síðasta ári var farið í fjölmargar sögugöngur á afmælisári Garðabæjar og voru þær vel sóttar. Boðið verður upp á fleiri fræðslu- og sögugöngur í vor og haust og verða þær kynntar nánar með vorinu.