9. jún. 2017

Sungið fyrir leikskólastjóra

Kór leikskólans Hæðarbóls kom og söng á síðasta fundi vetrarins hjá leikskólastjórum Garðabæjar og skólaskrifstofu 1. júní sl. Á þessum síðasta fundi leikskólastjóra voru þær Helga Kristjánsdóttir leikskólastjóri á Sunnuhvoli og Marta Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Kirkjubóli þökkuð góð störf á liðnum árum
  • Séð yfir Garðabæ

Kór leikskólans Hæðarbóls kom og söng á síðasta fundi vetrarins hjá leikskólastjórum Garðabæjar og skólaskrifstofu 1. júní sl. Í kórnum eru tveir elstu árgangar leikskólans en í ár eru það 36 börn. Leikskólinn Hæðarból hlaut styrk í vor úr Þróunarsjóði leikskóla til að þróa kórstarfið enn frekar. Stjórnandi kórsins er Anna María Sigurjónsdóttir leikskólakennari.

Á þessum síðasta fundi leikskólastjóra voru þær Helga Kristjánsdóttir leikskólastjóri á Sunnuhvoli og Marta Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Kirkjubóli þökkuð góð störf á liðnum árum en þær eru nú að láta af störfum sem leikskólastjórar.