9. jún. 2017

Sumar á Garðatorgi 9. júní kl.16-19

Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar taka þátt í sumargleði á Garðatorgi föstudaginn 9. júní kl. 16-19. Í Hönnunarsafninu verður ókeypis aðgangur fyrir gesti í tilefni dagsins og opið lengur eða til kl. 19. Þar verða hönnuðir að störfum í anddyri safnsins
  • Séð yfir Garðabæ

Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar taka þátt í sumargleði á Garðatorgi föstudaginn 9. júní kl. 16-19.  Í Hönnunarsafninu verður ókeypis aðgangur fyrir gesti í tilefni dagsins og opið lengur eða til kl. 19.  Þar verða hönnuðir að störfum í anddyri safnsins með verkefnið Nordic Angan þar sem ilmir í íslenskri náttúru eru kortlagðir.  Sjá nánar í frétt hér á vef Hönnunarsafnsins.

Bókasafn Garðabæjar ætlar líka að taka þátt í gleðinni og þar verður gestum og gangandi boðið að teikna eigið listaverk með götukrít fyrir utan safnið á Garðatorgi 7.  Safnið býður líka upp á ratleikinn bókhönnun sem er ratleikur á milli safnanna á Garðatorgi, bókasafnsins og Hönnunarsafnsins.  Auk þess geta börn tekið þátt í ratleik inni á bókasafninu.  Sjá einnig frétt hér á vef Bókasafnsins.

Upplýsingar um sumargleðina í viðburðadagatali Garðabæjar.