30. jún. 2017

Sumarhátíð í Krakkakoti

Hin árlega sumarhátíð í leikskólanum Krakkakoti var haldin á lóð leikskólans 16. júní sl. með pompi og prakt. Bangsinn Blær var að fara í sumarfrí þennan dag eins og hann gerir alltaf á sumrin og kom út í garð til að kveðja með hjálparböngsunum sínum og fékk alla gesti til að taka þátt í gjörningi með sér.
  • Séð yfir Garðabæ

Hin árlega sumarhátíð í leikskólanum Krakkakoti var haldin á lóð leikskólans 16. júní sl. með pompi og prakt. Gestir létu ekki veðrið á sig fá þótt sólin hafi ekki látið sjá sig.  

Bangsinn blær og hjálparbangsar sendu kærleika og vináttuþel út í alheiminn

Leikskólinn Krakkakot hefur í vetur verið að vinna með vináttúverkefni Barnaheilla og þar hefur aðalstjarnan verið ,,Blær bangsi" sem táknmynd vináttu og hugrekkis.  Bangsinn Blær var að fara í sumarfrí þennan dag eins og hann gerir alltaf á sumrin og kom út í garð til að kveðja með hjálparböngsunum sínum og fékk alla gesti til að taka þátt í gjörningi með sér.  Gjörningurinn var fólgin í að gestir og leikskólabörn mynduðu vináttuhring, fengu sápukúlur og sendu svo kærleika og vináttuþel út í alheiminn með sápukúlunum. 
Eða eins og einn fimm ára snáði sagði við þetta tækifæri „erum við þá að blása sápukúlur með ósýnilegu hjarta inn í fyrir alla í heiminum“. Einn starfsmaður Krakkakots brá sér í gervi Blæs og elstu börnin voru hjálparbangsarnir hans.

Spunaleikrit og grillveisla

Leikskólabörnin sungu einnig fyrir gesti þennan dag og nokkrir af starfsmönnum Krakkakots fluttu spunaleikritið „Argintæta“ við frábærar undirtektir. Eftir dagskrána fengu allir grillaðar pylsur og ís. Foreldrafélag Krakkakots aðstoðaði við undirbúning sumarhátíðarinnar og vösk sveit flokkstjóra úr unglingavinnunni stóð vaktina á grillinu.  Foreldrar og aðrir aðstandendur barnanna hafa verið dugleg að mæta á alla viðburði í leikskólanum og svo var einnig þennan dag. 

Sjá einnig frétt og fleiri myndir frá sumarhátíðinni á vef leikskólans.