14. júl. 2017

450 ungmenni í vinnuskóla Garðabæjar vinna að því að fegra bæinn

Í sumar eru um 450 ungmenni á aldrinum 13-16 ára skráð í vinnuskóla Garðabæjar. Ungmennin vinna að því að snyrta beð og opin svæði Garðabæjar sem og að aðstoða á hinum ýmsu sumarnámskeiðum.
  • Séð yfir Garðabæ

Um 450 ungmenni á aldrinum 13-16 ára stunda störf í Vinnuskóla Garðabæjar í sumar. Vinnuskólinn fór af stað í byrjun júní þegar flokkstjórar sumarsins hófu störf. Fyrstu vikuna sátu flokkstjórar ýmsa fyrirlestra og tóku þátt í fræðslu með það að leiðarljósi að vera sem best í stakk búin þegar ungmennin mættu til starfa. Auk þess að leggja sig fram við að snyrta og bæta beð og umhverfi Garðabæjar snýst vinnuskólinn um að leiðbeina börnum í starfi og leik. Starf Vinnuskólans er fjölbreytt og er mikilvægt að horfa ekki einungis til verka í bænum heldur einnig á almenna vellíðan ungmennana en síðustu ár hefur aukin áhersla verið lögð á forvarnargildi starfsins.

Ekki má líta fram hjá því stóra hlutverki sem vinnuskólinn gegnir þegar kemur að framboði á leikja- og íþróttanámskeiðum fyrir börn. Mikill fjöldi unglinga starfar víða um bæ hjá hinum ýmsu félögum og öðlast þar mikilvæga starfsreynslu.

Starf Vinnuskólans hefur gengið vel í sumar og hefur verið í nógu að snúast, þó mikil rigning hafi lagst mis vel í hópinn. Vinnuskólinn því hefur formlega óskað eftir betra veðri næsta sumar og verður sú beiðni lögð fyrir bæjarstjórn Garðabæjar.