15. sep. 2017

Fallegt haustveður í lýðheilsugöngu frá Ásgarði

Það var fallegt veður þegar haldið var af stað í lýðheilsugöngu undir þemanu vinátta frá Ásgarði miðvikudaginn 13. september sl. Þátttakendur voru á öllum aldri, sá yngsti 10 ára og elsti 80+.
  • Séð yfir Garðabæ

Það var fallegt veður þegar haldið var af stað í lýðheilsugöngu undir þemanu vinátta frá Ásgarði miðvikudaginn 13. september sl. Þátttakendur voru á öllum aldri, sá yngsti 10 ára og elsti 80+.  Það var Svandís Ríkharðsdóttir íþróttakennari sem stýrði göngunni en á leiðinni voru m.a. gerðar öndunaræfingar og léttar teygjur.   

Saga merkra húsa á Álftanesi

Miðvikudaginn 20. september kl. 18:00 verður haldið í sögugöngu um Álftanesið undir leiðsögn Péturs Ármannssonar arkitekts sem segir frá sögu merkra húsa á nesinu.  Mæting er við húsið Bjarnastaði sem er staðsett við gatnamót Bakkavegar og Bjarnastaðavarar.  Gengið verður stuttan hring um suðurnesið um klukkutíma.  Létt og þægileg ganga fyrir alla áhugasama. 

Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar

Náttúruganga í Heiðmörk

Síðasta gangan í september verður miðvikudaginn 27. september en þá verður haldið í göngu undir þemanu náttúra í Heiðmörk þar sem gengið verður að Selholti undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Nánari upplýsingar um þá göngu verða settar inn í viðburðadagatalið hér á vefnum.

Lýðheilsugöngur FÍ í september

Göngurnar eru hluti af verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september og um leið áframhald sögu- og fræðslugangna sem hafa verið í boði á þessu ári og undanförnu ári í Garðabæ og hafa verið vel sóttar af almenningi.  
Allir eru velkomnir í göngurnar en tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. 
Allar upplýsingar um göngustaði og gönguleiðir annars staðar á landinu má finna á vef verkefnisins www.fi.is/lydheilsa.