28. sep. 2017

Gengið að Vífilsstaðaseli í Heiðmörk

Miðvikudaginn 27. september var haldið í sögugöngu að Vífilsstaðaseli í Selholti í Heiðmörk undir leiðsögn Ragnheiðar Traustdóttur fornleifafræðings. Lagt var af stað frá bílaplani við Heiðmerkurvegið og gengið þaðan með hlíðinni upp veginn að selinu.
  • Séð yfir Garðabæ

Miðvikudaginn 27. september var haldið í sögugöngu að Vífilsstaðaseli í Selholti í Heiðmörk undir leiðsögn Ragnheiðar Traustdóttur fornleifafræðings.  Lagt var af stað frá bílaplani við Heiðmerkurvegið og gengið þaðan með hlíðinni upp veginn að selinu. Göngumenn fengu ágætisveður á leiðinni þótt skyggnið hafi ekki verið upp á sitt besta þegar komið var upp hlíðina þar sem Vífilsstaðaselið er. 

Vífilsstaðasel er austan við línuveg í skjólgóðum og grasi grónum hvammi, sunnan þess er Selholt, Selás suðaustan og Selhóll þar vestur af með Selkvíunum. Í mýrarkorni er svo Selbrunnurinn og þar vestur af liggur Selstígurinn að Vífilstöðum.  Þarna eru leifar af nýrri og eldri selstöðum og er því að finna mörg hús á svæðinu frá mismunandi tímum. Elstu selin eru útflött og erfitt að átta sig á húsaskipan en yngsta selið er vel greinilegt og eru fimm rými í þeim og öll í röð. Leifar af tveimur stekkjum er finna rétt ofan við selin. 

Gangan var í boði Garðabæjar en bærinn tók þátt í verkefni Ferðafélags Íslands í september og bauð upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september.  Þessi síðasta ganga var vel sótt eins og fyrri göngurnar í Garðabæ í september.  Jafnframt voru göngurnar áframhald vinsælla fræðslu- og sögugangna Garðabæjar á þessu ári.