15. nóv. 2017

Lið úr Garðaskóla sigraði í LEGO-hönnunarkeppni

Lið Garðaskóla náði þeim frábæra árangri að vinna tækni- og hönnunarkeppnina FIRST LEGO League sem fór fram í Háskólabíói 11. nóvember sl. Liðið vann sér um leið þátttökurétt í norrænni keppni FIRST LEGO League sem verður haldin í Osló í byrjun desember.
  • Séð yfir Garðabæ

Lið Garðaskóla náði þeim frábæra árangri að vinna tækni- og hönnunarkeppnina FIRST LEGO League sem fór fram í Háskólabíói 11. nóvember sl. Liðið vann sér um leið þátttökurétt í norrænni keppni FIRST LEGO League sem verður haldin í Osló í byrjun desember. Þar verður keppt við aðrar Norðurlandaþjóðir í forritun þjarka (róbóta) sem byggir á hönnun- og verkfræðihugsun. Auk þess mun liðið stilla upp kynningarbás á ensku um rannsóknarefnið vatn sem er þema keppninnar í ár. 

Keppnin skiptist í fjóra meginhluta sem allir teljast til stiga: Forritun, rannsóknarverkefni, liðsheild og vélmennakappleik. Auk þess að bera sigur í heildarstigakeppninni vann lið Garðaskóla (sem nefndist Filippo Berio liðið), einnig sérstök verðlaun fyrir hönnun og forritun vélmennis. 

Um 200 keppendur í 21 liði frá 18 grunnskólum á Íslandi skráðu sig til leiks og stóð keppnin allan daginn. Markmiðið með keppninni er að efla færni og vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum með því að leggja fyrir þau spennandi verkefni sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskipta- og skipulagshæfni. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir keppninni í rúman áratug en aðrir helstu styrktaraðilar eru Nýherji og Krumma.

Sjá einnig frétt á vef Háskóla Íslands um keppnina.