Bein útsending af íbúafundi í Sjálandsskóla hefst kl. 17:30
Bein útsending af íbúafundinum í dag hefst kl. 17:30 á fésbókarsíðu Garðabæjar
-
Bjóðum í samtal
Bein útsending af íbúafundinum í dag hefst kl. 17:30 á ,,facebook-live" á fésbókarsíðu Garðabæjar.
Bjóðum í samtal
Hverfafundir - íbúafundir með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar
Miðvikudaga í janúar og febrúar kl. 17:30 – 19:00
Þriðji fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 31. janúar kl. 17:30 - 19 í Sjálandsskóla við Löngulínu.
Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar
Íbúar Akrahverfis, Arnarness, Ása, Sjálandshverfis, Garðahverfis, Garðahrauns, Prýðishverfis og Hleina eru sérstaklega velkomnir.
Á dagskrá fundanna verður m.a.
• Inngangur frá bæjarstjóra
• Nágrannavarsla og þjónusta
• Framkvæmdir í nærumhverfi og skipulagsmál
• Fræðslumál og fjölskyldumál
• Um hvað vilt þú tala? Innsendar fyrirspurnir bæjarbúa og fyrirspurnir úr sal – umræður
Vonumst til að sjá sem flesta íbúa taka samtalið við okkur á fundunum.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
• Boðið verður upp á súpu og brauð.
• Íbúum gefst kostur á að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina á vef Garðabæjar, gardabaer.is.
• Allir fundir verða sendir út beint á vef Garðabæjar.
Fyrirspurnir og umræðuefni - sendu inn ábendingu!
Íbúar eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina hér á vef Garðabæjar. Einnig er hægt að senda inn óskir um umræðuefni á fundunum hér.
Dagsetning |
Hverfi |
Fundarstaður |
17. janúar |
Urriðaholt, Vífilsstaðir og Hnoðraholt |
Fundarsalur Toyota, Kauptúni |
24. janúar |
Álftanes |
Hátíðarsalur Álftaness, íþróttamiðstöðinni |
31. janúar |
Akrahverfi, Arnarnes, Ásar, Sjáland, Garðahraun/Prýði, Hleinar |
Sjálandsskóli |
7. febrúar |
Hæðahverfi, Flatahverfi, Byggðir, Búðir, Bæjargil, Fitjar, Hólar, Garðatorg, Grundir, Móar, Lundir, Mýrar, Tún |
Flataskóli |
Hverfaskiptingin er leiðbeinandi, allir fundir eru opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.