Safnanótt og Sundlauganótt framundan
Söfn í Garðabæ taka þátt í Safnanótt sem verður haldin föstudagskvöldið 6. febrúar nk. kl. 19-24. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu taka þátt í dagskránni. Kvöldið eftir laugardaginn 7. febrúar verður haldin Sundlauganótt sem einnig er hluti af Vetrarhátíð og að þessu sinni tekur Álftaneslaug í Garðabæ þátt í þeirri dagskrá annað árið í röð. Fjölbreytt dagskrá verður í boði í söfnum Garðabæjar og Álftaneslaug af þessu tilefni. Ókeypis aðgangur verður í söfnin á Safnanótt og í Álftaneslaug á Sundlauganótt.
Í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar er hægt að sjá dagskrána í Garðabæ á Safnanótt og Sundlauganótt en jafnframt er hægt að sjá alla viðburði á vef Vetrarhátíðar, www.vetrarhatid.is
Safnanótt - föstudagskvöldið 6. febrúar - dagskrá í Hönnunarsafni - Króki - Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og á Álftanesi
Un peu plus- teikningar og skissur Helgu Björnssonar tískuhönnuðar er heitið á nýrri sýningu í Hönnunarsafni Íslands sem opnar á Safnanótt. Viðfangsefni sýningarinnar eru tískuteikningar Helgu Björnsson, sem var yfirhönnuður hátískulínu tískufyrirtækisins Lois Féraud í Frakklandi í tvo áratugi. Í Hönnunarsafninu er einnig hægt að skoða hina vinsælu sýningu Ertu tilbúin frú forseti? þar sem sjónum er beint að fatnaði frú Vigdísar Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands. Boðið verður upp á leiðsagnir um báðar sýningarnar í safninu kl. 20 og kl. 22 um kvöldið. Hönnunarsafnið er til húsa að Garðatorgi 1.
Burstabærinn Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Opið hús verður í Króki á Safnanótt, bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.
Í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og á Álftanesi verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Safnanótt. Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson flytja sönglög eftir Jóhann Helgason við ljóð Þórarins Eldjárns undir yfirskriftinni Gælur, fælur og þvælur. Flutningur þeirra hefst kl. 19 á Garðatorgi og þau stíga einnig á svið í safninu á Álftanesi kl. 20 um kvöldið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur fjallar um bókina ,,Dægradvöl“ eftir Benedikt Gröndal skáld og rithöfund (1826-1907) í báðum söfnunum, kl. 19 á Álftanesi og kl. 20:30 í safninu á Garðatorgi. Skemmtileg og öðruvísi sýning er nefnist ,,Gleymt og geymt“ opnar í safninu á Garðatorgi. Þar verða sýndir ýmsir munir sem hafa gleymst í bókum safnsins gegnum árin og Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur flytur hugleiðingu við opnun sýningarinnar kl. 20. Á Garðatorgi verður einnig hægt að hlýða á kynningu á bók Vibeke Nörgaard Nielsen í þýðingu Sigurlínar Sveinbjarnardóttur um danska listmálarann Johannes Larsen kl. 21.30.
Sundlauganótt í Álftaneslaug – laugardaginn 7. febrúar - öldudiskó, zumba, tónlist og fljótandi slökun
Ókeypis aðgangur verður í Álftaneslaug um kvöldið laugardaginn 7. febrúar. Boðið verður upp á öldudiskó um kl. 18:30, þar sem hægt verður að hlusta á hress lög við sundlaugarbakkann úti við og öldulaugin verður sett af stað. Um kl. 19:30 geta sundlaugargestir prófað zumba í vatni. Aqua zumba öðru nafni Zumba sundlaugarpartý gefur hressilegri líkamsþjálfun nýja merkingu. Um kl. 20 stíga ungir og efnilegir Garðbæingar á svið við sundlaugarbakkann og halda stutta tónleika. Hljómsveitina skipa þau Rebekka Sif Stefánsdóttir söngkona, Aron Andri Magnússon á rafgítar, Sindri Snær Thorlacius á rafgítar og Helgi Þorleiksson á trommur. Síðar um kvöldið um kl. 20:30 geta sundlaugagestir slakað á í samfloti þar sem komið er saman og svifið um í leikandi léttu þyngdarleysi í hlýrri og notalegri innilauginni. Til miðnættis verður svo tónlist og notaleg lýsing í sundlauginni fyrir sundlaugargesti.