Garðabær komst áfram í Útsvari
Lið Garðabæjar sigraði lið Hornafjarðar í spurningaþættinum Útsvari föstudagskvöldið 25. nóvember sl. í beinni útsendingu sjónvarpsins. Garðabær hafði betur með átta stigum og fékk 68 stig
Lið Garðabæjar sigraði lið Hornafjarðar í spurningaþættinum Útsvari föstudagskvöldið 25. nóvember sl. í beinni útsendingu sjónvarpsins. Garðabær hafði betur með átta stigum og fékk 68 stig en Hornafjörður fékk 60 stig. Garðabær er þar með komið í aðra umferð Útsvars en ekki er búið að dagsetja næstu viðureign. Hornafjörður kemst líka áfram í næstu umferð þar sem stigahæstu tapliðin komast einnig áfram.
Meðfylgjandi mynd (af vef RÚV) er af liði Garðabæjar, frá vinstri: Huginn Freyr Þorsteinsson, Aldís Hilmarsdóttir og Steinn Hildar Þorsteinsson.
Þeir sem misstu af þættinum sl. föstudagskvöld geta horft á þáttinn í Sarpinum á vef RÚV.