Gervigras endurnýjað á völlum í Ásgarði
Endurnýjun á gervigrasi æfingavalla og battavalla við Ásgarð verður boðin út
Bæjarráð ákvað á fundi sínum í morgun að fela bæjarverkfræðingi að útbúa gögn til að bjóða út endurnýjun á gervigrasi æfingavalla og battavalla á íþróttasvæði við Ásgarð.
Þetta er fyrsti liðurinn í endurnýjun á öllu yfirborði gervigrasvalla í bænum sem farið verður í á næstunni.