Starfsfólk lærir skyndihjálp
Árlegt skyndihjálparnámskeið starfsfólks Ásgarðs og Mýrarinnar var haldið í maí
Árlegt skyndihjálparnámskeið var haldið í Ásgarði, dagana 21.-27. maí, fyrir alla starfsmenn Ásgarðs og Mýrarinnar.
Allir starfsmenn fengu grunnþekkingu í skyndihjálp svo sem í endurlífgun og notkun hjartastuðtækis, ásamt fleiru. Níu starfsmenn náðu sér í eða viðhéldu laugarvarðaréttindum. Til að öðlast réttindi þarf að taka námskeiði í björgun úr laug, einnig þarf að þreyta sundpróf og próf í að kafa eftir hlutum þ.á.m. þyngdri dúkku.
Námskeið þessi eru skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum og eru haldin árlega fyrir starfsfólk íþróttamiðstöðvanna.
Það er Karl Rúnar Þórsson skyndihjálparleiðbeinandi sem séð hefur um framkvæmd námskeiðanna.