12. apr. 2023

Nemendur Flataskóla með söngleikinn Grease

Nemendur á miðstigi Flataskóla í Garðabæ sýndu söngleikinn Grease í marsmánuði.

Nemendur á miðstigi Flataskóla í Garðabæ sýndu söngleikinn Grease í marsmánuði. Það voru nemendur í leiklistarfjölvali á miðstigi sem höfðu æft söngleikinn í fjölvalstímum á haustönninni undir stjórn þriggja kennara skólans. 

Verkið var sett á svið í sal Tónlistarskólans fyrir aðra nemendur Flataskóla og forráðamenn og óhætt er að segja að vel tókst til. Nemendur skiluðu hlutverkum sínum með miklum sóma, sungu og léku af við mikinn fögnuð áhorfenda.