26. jún. 2019

Maxímús heimsótti Tónlistarskóla Garðabæjar

Í vor var boðið upp á skemmtilega tónleika í Tónlistarskóla Garðabæjar. Um var ræða flutning á sögunni ,,Maxímús trítlar í tónlistarskóla"

  • Maximús trítlar í tónlistarskóla
    Maximús trítlar í tónlistarskóla

Í vor var boðið upp á skemmtilega tónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund.  Um var ræða flutning á sögunni ,,Maxímús trítlar í tónlistarskóla" í flutningi sögumanns og tónlistin var flutt af nemendum og kennurum Tónlistarskóla Garðabæjar.  Fjölmargar sýningar voru haldnar fyrir elstu börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla Garðabæjar en alls mættu um 340 börn á aldrinum 5-7 ára á sýningarnar. 

Á vef Tónlistarskóla Garðabæjar má sjá upplýsingar um námið sem er í boði í skólanum auk frétta úr daglegu starfi skólans.  Skólinn er einnig með fésbókarsíðu. 

Maximús trítlar í tónlistarskóla