15. nóv. 2019

Málþing um börn og samgöngur

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþinginu „Börn og samgöngur“ sem verður haldið í Garðabæ mánudaginn 18. nóvember.

  • Málþing um börn og samgöngur
    Málþing um börn og samgöngur

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþinginu „Börn og samgöngur“. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi 7 mánudaginn 18. nóvember frá 12:30 til 16:30.  Sjá dagskrá hér í viðburðadagatalinu. 

Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig.  Hlekk í skráningu má finna hér í frétt á vef Stjórnarráðsins. 

Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.