Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Nemendur í 7. bekk sem valdir voru úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla lásu svipmyndir úr skáldverkum og ljóð.
-
Ásta Emilý Evertsdóttir nemandi í Álftanesskóla stóð uppi sem sigurvegari keppninnar, í öðru sæti var Viktor Óli Grétarsson nemandi í Sjálandsskóla og í þriðja sæti Heiðar Leó Sölvason nemandi í Hofsstaðaskóla
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Garðabæ fór fram í Álftanesskóla fimmtudaginn 27. apríl.
Þá lásu nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla svipmyndir úr skáldverki og ljóð.
Nemendur stóðu sig með mikilli prýði við upplesturinn og í lokin fengu allir viðurkenningu fyrir þátttöku. Ásta Emilý Evertsdóttir nemandi í Álftanesskóla stóð uppi sem sigurvegari keppninnar, í öðru sæti var Viktor Óli Grétarsson nemandi í Sjálandsskóla og í þriðja sæti Heiðar Leó Sölvason nemandi í Hofsstaðaskóla
Maggy Ashipala nemandi í Álftanesskóla frá Namibíu las ljóð á móðurmáli sínu Oshiwambo.
Jóhann Steinar Ingimundarsson varaformaður skólanefndar Álftanesskóla flutti ávarp á hátíðinni og Þorgerður Erla Ögmundsdóttir og Nökkvi Styr Jóhannesson nemendur í Álftanesskóla og Tónlistarskóla Garðabæjar voru með tónlistaratriði. Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar veitti nemendunum verðlaun.
Dómarar keppninnar voru þau Auður Björgvinsdóttir læsisfræðingur, Jóhann Skagfjörð Magnússon skólastjóri Garðaskóla og Hrönn Bergþórsdóttir skólastjóri í Víðistaðaskóla og fyrrverandi stjórnarmeðlimur Radda en hún var jafnframt formaður dómnefndar.
Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju og þökkum öllum fyrir skemmtilega og flotta keppni.
Hér má sjá fleiri myndir af lokahátíðinni.