30. nóv. 2018

Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi

Laugardaginn 1. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 49. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. 

  • Starfsmenn Asker fella jólatréð sem er fengið úr garði íbúa í Asker
    Starfsmenn Asker fella jólatréð sem er fengið úr garði íbúa í Asker

Laugardaginn 1. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 49. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. Athöfnin á laugardag hefst kl. 16 á Garðatorgi við ráðhús Garðabæjar. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur jólalög og því næst syngur barnakór leikskólans Hæðarbóls nokkur lög fyrir gesti. Hilmar Ingólfsson, formaður Norræna félagsins í Garðabæ, býður gesti velkomna og Hilde Svartdal Lunde sendiherra Noregs á Íslandi afhendir jólatréð fyrir hönd Asker. Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitir trénu viðtöku. Börn í skólakór Hofsstaðaskóla stíga á svið og flytja vel valin lög fyrir viðstadda og að lokum mæta jólasveinar fyrr til byggða og halda uppi stemningunni með skemmtilegum jólalögum. Gestir eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri.

Barnaleikrit í Bókasafninu og ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands

Ýmislegt verður einnig um að vera fyrr um daginn í miðbæ Garðabæjar. Að venju er leiksýning í Bókasafni Garðabæjar, sem að þessu sinni hefst kl. 14:30 þegar leiksýningin ,,Sigga og skessan í jólaskapi“ verður sýnd í safninu á Garðatorgi 7. Laugardaginn 1. desember verður einnig ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi og safnið er opið frá kl. 12-17. Í safninu standa yfir sýningarnar ,,Og andefni – vinnustofusýning“ og ,,Safnið á röngunni með Einari Þorsteini“.   Sama dag verður smástundamarkaður í Hönnunarsafninu. 

Verslun á Garðatorgi, opnar vinnustofur og jólalistamarkaður Grósku

Á Garðatorgi er hægt að byrja jólaverslunina í verslunum á torginu. Listamenn í Grósku ætla að skella upp jólalistamarkaði á laugardeginum frá kl. 12-18 í Gróskusalnum á 2. hæð á Garðatorgi 1. Einnig verða opnar vinnustofur listamanna á sömu hæð þar sem verður líka hægt að finna stór og smá verk til að gleðja hvern sem er.

Allir eru velkomnir á Garðatorgið til að taka þátt í jóladagskránni.

Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar. 

Jólatréð sett upp á Garðatorgi