Leið 22: Urriðaholt-Ásgarður
Leið 22 er ný strætóleið sem fer um Urriðaholtið að Ásgarði í Garðabæ. 18 manna smárúta ekur leiðina á annatímum á virkum dögum og utan annatíma og um helgar verður leiðin í pöntunarþjónustu*.
-
Séð yfir Urriðaholt
Leið 22 er ný strætóleið sem fer um Urriðaholtið að Ásgarði í Garðabæ. Akstur á leiðinni hefst sunnudaginn 6. september nk. Þessi nýja leið verður ekin samkvæmt nokkuð óhefðbundnu sniði. Í stað hefðbundinna strætisvagna mun 18 manna smárúta aka leiðina á annatímum á virkum dögum. Utan annatíma og um helgar verður leiðin í pöntunarþjónustu*.
Forráðamenn barna í Urriðaholti sem nýta skólabíl athugið að akstur skólabíls í Urriðaholti verður skv. leiðaráætlun skólabílsins mánudag, þriðjudag og miðvikudag 7.-9. september.
Frá Ásgarði verða 3 biðstöðvar við Vífilsstaðaveg: við Garðatorg, við Kirkjulund (Vídalínskirkja/Tónlistarskóli Garðabæjar) og á móts við Asparlund/Móaflöt.
Fjórar biðstöðvar verða í Urriðaholti á leið 22, við Urriðaholtsstræti, Urriðaholtsskóla, við Holtsveg og við Náttúrufræðistofnun Íslands.
*Með pöntunarþjónustu hringja viðskiptavinir í Hreyfil í síma 5885522 og panta ferð minnsta kosti 30 mínútum fyrir brottför skv. tímatöflu. Greitt er fyrir farið í leigubílnum með Strætókorti, Strætóappinu eða skiptimiða.
Sjá kort af leiðinni og nánari upplýsingar í frétt á vef Strætó.
Hér má sjá tímatöflur á vef Strætó.
Áætlun leiðar 22
VIRKIR DAGAR
18 manna smárúta á áætlun:
Á hálftíma fresti á annatíma milli kl. 7:00-9:00 og frá kl. 14:00-18:00.
Pöntunarþjónusta*:
Á klukkutímafresti frá kl. 09:30-13:30 og frá 18:30-23:30
HELGAR:
Pöntunarþjónusta*:
Laugardagar frá kl. 08:30-23:30 á klukkutíma fresti
Sunnudagar frá kl. 09:30-23:30 á klukkutíma fresti
Uppbygging almenningssamgangna - þróunarverkefni í eitt ár
Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað á síðustu misserum. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert ráð fyrir allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Uppbygging almenningssamgangna í Urriðaholti er þróunarverkefni til eins árs frá september 2020 - september 2021 þar sem nýting á strætóleið 22 verður skoðuð og verkefnið metið með jöfnu millibili til að hægt sé að bæta úr verði þess þörf.
Sjá einnig nánar í frétt hér á vef Garðabæjar frá 1. september.