24. jún. 2021

Jónsmessugleði Grósku í tólfta sinn

Jónsmessugleði myndlistarfélagsins Grósku verður haldin í tólfta sinn í kvöld, fimmtudaginn 24. júní kl. 19.30-22 með þemanu „leiktjöld litanna“. Fjölbreytileg og sérlega litrík listaverk verða til sýnis við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar og að þessu sinni stendur sjálf myndlistarsýningin yfir fram á sunnudaginn 27. júní. 

  • Jónsmessugleði Grósku
    Frá Jónsmessugleði Grósku 2019

Jónsmessugleði myndlistarfélagsins Grósku verður haldin í tólfta sinn í kvöld, fimmtudaginn 24. júní kl. 19.30-22 með þemanu „leiktjöld litanna“. Fjölbreytileg og sérlega litrík listaverk verða til sýnis við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar og að þessu sinni stendur sjálf myndlistarsýningin yfir fram á sunnudaginn 27. júní.  Auk sjálfrar sýningarinnar verða alls konar listviðburðir á dagskrá: Upplestur, tónlist og söngur, dans, leiklist og fleira. Að venju lýkur Jónsmessugleði Grósku svo með óvæntum gjörningi í lok kvöldsins.

Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, stendur fyrir Jónsmessugleði í samstarfi við Garðabæ en auk félaga úr Grósku taka gestalistamenn frá Vestmannaeyjum, Rangárþingi, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík þátt í sýningunni. Viðburðaþátttakendur koma einnig hvaðanæva að. Hópur ungmenna í skapandi sumarstörfum í Garðabæ taka einnig þátt í Jónsmessugleðinni. 

Gestir sem sækja Jónsmessugleðina eru beðnir um að virða fjarlægðarmörk og að hópast ekki saman um of heldur njóta þess að ganga um strandstíginn þar sem er nægt rými til að virða fyrir sér listaverkin.

Viðburður á fésbókarsíðu Grósku.