28. feb. 2019

Innritun nemenda í 1. og 8. bekk hefst 1. mars

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2013) og 8. bekk (f. 2006) fer fram dagana 1. - 24. mars nk. Innritað er á Mínum Garðabæ. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 24. mars nk.

  • Innritun í grunnskóla
    Innritun í grunnskóla Garðabæjar fer fram dagana 1.-10. mars nk.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2013) og 8. bekk (f. 2006) fer fram dagana 1. - 24. mars nk. Innritað er hér á Mínum Garðabæ.  Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 24. mars nk.

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 24. mars nk.
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á tómstundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á Mínum Garðabæ. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á tómstundaheimilum.

Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:


Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2019-2020 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt á Mínum Garðabæ .

Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar.