Íbúafundur í Urriðaholti fimmtudaginn 28. okt kl. 17-19
Fimmtudaginn 28. október nk. kl. 17-19 verður haldinn fundur um málefni íbúa Urriðaholts og nágrannavörslu í Urriðaholti. Fundurinn er haldinn í samvinnu Garðabæjar og íbúasamtaka Urriðaholts og verður haldinn í Urriðaholtsskóla.
-
Séð yfir Urriðaholt. Ljósmynd: Þráinn Hauksson, Landslag
Fimmtudaginn 28. október nk. kl. 17-19 verður haldinn fundur um málefni íbúa Urriðaholts og nágrannavörslu í Urriðaholti. Fundurinn er haldinn í samvinnu Garðabæjar og íbúasamtaka Urriðaholts og verður haldinn í Urriðaholtsskóla. Fundurinn hefst á aðalfundi íbúasamtakanna kl. 17:00 og svo tekur Garðabær við fundinum þar sem rætt verður um nágrannavörslu í Garðabæ og almenn málefni Urriðaholts verða einnig á dagskrá í lok fundar.
Íbúar í Urriðaholti sem og aðrir áhugasamir um málefni íbúa í Urriðaholti og nágrannavörslu í hverfinu eru hvattir til að mæta á fundinn og það verður boðið upp á kaffi.
Þeir sem eiga ekki kost á að mæta á staðinn eða vilja fylgjast með heiman frá sér geta horft á fundinn á fésbókarsíðu Garðabæjar þaðan sem fundinum verður streymt. Sjá hér:
Viðburður á facebook síðu Garðabæjar.
Dagskrá fundarins:
- Kl. 17:00 Aðalfundur íbúasamtaka Urriðaholts, opinn öllum íbúum hverfisins
- Kl. 17:30 Nágrannavarsla í Garðabæ
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, býður gesti velkomna
Fulltrúi frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins kynnir tölfræði um þróun afbrota og góðar ábendingar um forvarnir og nágrannavörslu
Sunna Sigurðardóttir, verkefnastjóri, kynnir innleiðingu á nágrannavörslu í Urriðaholti - Kl. 18:15 Málefni Urriðaholts, Gunnar Einarsson bæjarstjóri
Fyrirspurnir og umræður