17. maí 2019

Hreinsunarátak í Garðabæ

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar var haldið dagana 23. apríl – 7. maí sl. Íbúasamtök, nágrannar, félagasamtök og skólar í bænum hafa verið hvött til að taka þátt undanfarin ár með því markmiði að Garðabær verði snyrtilegasti bær landsins.

  • Hreinsunarátak Garðabæjar heppnaðist vel.
    Hreinsunarátak Garðabæjar

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar var haldið dagana 23. apríl – 7. maí sl. Íbúasamtök, nágrannar, félagasamtök og skólar í bænum hafa verið hvött til að taka þátt undanfarin ár með því markmiði að Garðabær verði snyrtilegasti bær landsins. 

Þau félög eða hópar sem tóku þátt gátu sótt um hvatningarstyrk til að halda t.d. grillveislu í lok góðrar tiltektar. Að auki voru íbúar bæjarins hvattir til að sýna gott fordæmi með því að hugsa vel um nærumhverfi sitt og halda því snyrtilegu. Bæjarstarfsmenn sjá um að hirða alla poka og annað sem fellur til við ruslatínsluna.

Í ár sóttu 36 um að fá úthlutað svæði til hreinsunar, þar af sex á Álftanesi. Á Álftanesi voru þátttakendur t.d. kvenfélag, Lions klúbbur, félag eldri borgara, Íþróttafélag, og golfklúbbur. Þar sem úthlutuð svæði eru tiltölulega stór þá náðist að dreifa hópunum yfir stór svæði þar sem opin svæði og fjörur voru hreinsaðar.

Í innbæ Garðabæjar voru 30 sem sóttu um að fá úthlutað svæði. Í þeim hópi voru félagasamtök, Íþróttafélag, íbúasamtök, húsfélög, leikskólar, grunnskólar, fjölskyldur, kvennakór og plokkarar. Úthlutuð svæði dreifðust nokkuð vel um bæinn eins og t.d. opin svæði, lækjarsvæði, strandlengja Gálgahrauns, Arnarness og Arnarnesvogur. Bæjarfulltrúar tóku þátt í hreinsunarátakinu og sýndu gott fordæmi með því að hreinsa svæðið umhverfis Ásgarð ásamt lækjarsvæði.

Hreinsunarátak Garðabæjar heppnaðist vel.Hreinsunarátak Garðabæjar heppnaðist vel.

Hreinsunarátak Garðabæjar heppnaðist vel.

Hreinsunarátak Garðabæjar heppnaðist vel.